Talsverður viðbúnaður lögreglu var við fjölbýlishús við Rauðás í Árbænum fyrir skömmu.
Bílar, bæði frá sérsveit ríkislögreglustjóra og lögreglunni, voru á staðnum en ekki hefur náðst í lögregluna vegna málsins.
Samkvæmt upplýsingum mbl.is er tæknideild lögreglunnar enn á staðnum en sérsveitarbílarnir eru á bak og burt.