Karlmaður á sjötugsaldri, sem ákærður er fyrir íkveikju og manndráp í tengslum við brunann Bræðraborgarstíg í júní, neitaði sök við þingfestingu málsins við Héraðsdóm Reykjavíkur í morgun. Þetta staðfestir Kolbrún Benediktsdóttir varahéraðssaksóknari í samtali við mbl.is.
Í þinghaldinu í morgun var lagt fram mat um ósakhæfi mannsins, en ákæruvaldið óskaði eftir aukaspurningum við matið. Kolbrún segir að þar sé um að ræða spurningar til að meta stöðu hans í dag sem og hvort gera þurfi öryggisráðstafanir verði komist að þeirri niðurstöðu að hann sé ósakhæfur.
Verjandi mannsins óskaði eftir að þinghald málsins yrði lokað, en ekki var fallist á það að svo stöddu og verður ákvörðun um það tekin síðar.
Kolbrún segir að næstu skref sé fyrirtaka í málinu þar sem viðbótarmatið verði lagt fram.
Maðurinn hefur setið í varðhaldi frá því að hann var handtekinn sama dag og bruninn varð. Þrír létust í brunanum, öll pólskir ríkisborgarar, og vakti málið mikla reiði meðal margra sem kröfðust úrbóta í málefnum erlends verkafólks hér á landi.