Viðar Guðjónsson
Könnun sem Maskína lagði fyrir forsvarsmenn fyrirtækja sem eiga aðild að SA dagana 19.-24. ágúst leiddi í ljós að ríflega 90% þeirra telja ekkert, mjög lítið eða fremur lítið svigrúm til launahækkana um næstu áramót.
Þetta er á meðal þess sem fram kemur í efnahagsgreiningu SA sem kynnt verður félagsmönnum í dag. Eins mun í dag fara fram atkvæðagreiðsla um hvort segja beri upp lífskjarasamningnum.
Í kynningunni segir einnig að þess sé vænst að verðmætasköpun verði ríflega 300 milljörðum króna minni á árinu 2021 en gert var ráð fyrir við undirritun samninga. „Lítil sem engin innistæða er fyrir 45 milljarða króna launahækkunum við núverandi aðstæður,“ segir í kynningu.
ASÍ hefur ekki viljað koma að samningaborðinu til þess að ræða nýjar útfærslur á boðuðum launahækkunum, að því er fram kemur í umfjöllun um mál þetta í Morgunblaðinu í dag.