Ný brú byggð á Sólheimasandi

Gamla brúin er orðin meira en 50 ára gömul og …
Gamla brúin er orðin meira en 50 ára gömul og barn síns tíma. Þetta er ein umferðarmesta einbreiða brúin á Íslandi og kominn tími á endurnýjun. Ljósmynd/Vegagerðin

Vegagerðin hefur óskað eftir tilboðum í smíði brúar á hringveginum, yfir Jökulsá á Sólheimasandi, endurgerð vegarins beggja vegna og gerð bráðabirgðavegar. Nýja brúin mun leysa af hólmi einbreiða og hættulega brú. Á álagstímum á sumrin hafa oft myndast biðraðir við brúna.

Samkvæmt útboðslýsingu verður heildarlengd vegkafla á hringvegi um einn kílómetri. Ný brú verður eftirspennt bitabrú í fimm höfum, alls 163 metrar. Hún verður reist á sama stað og sú gamla, sem verður rifin. Bráðabirgðabrú verður gerð sem vinnuflokkur Vegagerðarinnar smíðar. Nýja brúin er hönnuð af Verkís.

Verkinu skal að fullu lokið fyrir 15. nóvember 2021. Útboðið er auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu (EES) og verða tilboð opnuð þriðjudaginn 27. október nk.

Í Morgunblaðinu í dag kemur fram, að gamla brúin á Jökulsá á Sólheimasandi austan Skóga er  eina einbreiða brúin á leiðinni frá Reykjavík og austur að Kirkjubæjarklaustri.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert