Inga Sæland, formaður Flokks fólksins, sagði í ræðu sinni í umræðum um setningarræðu forsætisráðherra að hún hefði aldrei séð viðlíka hagsmunagæslu í þágu ríkra og í tíð núverandi ríkisstjórnar. Hún sagði að fátækasta fólkið á Íslandi hefði gleymst og að ræður annarra ræðumanna væru „kosningaræður.“
„Ágætt að hafa hjól atvinnulífsins í gangi, [...] en þarf líka að huga að þeim sem hjálp þurfa á að halda,“ sagði Inga.
Hún segir að Samtök atvinnulífsins hafi farið í „fýlu“ og náð að draga 25 milljarða úr ríkisstjórninni á einum degi þegar hjálparstofnanir sem hjálpa þeim sem minna mega sín á Íslandi fengu 25 milljónir, og var þeim skipt á milli níu mismunandi hjálparstofnana.
Inga Sæland sagði það óboðlegt að á Íslandi þyrfti fólk að bíða í röð til þess að geta fengið mat að borða – og það á vakt Vinstri grænna.
Hún sagði jafnframt að Flokkur fólksins ætlaði að standa vörð um málefni fátækra og þeirra sem þurfa á hjálp á halda. Inga segir það að „ráðast í aðgerðir“ fela í sér að hjálpa öllum og sérstaklega þeim sem þurfa á hjálp að halda, ekki bara þeim sem „eiga.“
Inga gagnrýndi fyrri ræðumenn, Katrínu Jakobsdóttur og Sigmund Davíð Gunnlaugsson, fyrir að eyða tíma sínum í vísanir um franska heimspekinginn Albert Camus. Sagði Inga Camus vera einhvern „koníakskall“ og var þá líklega að vísa til samnefnds koníaksframleiðanda, sem þó er alfarið ótengdur heimspekingnum franska.