Alls greindist 61 nýtt kórónuveirusmit innanlands í gær, þar af 55 í einkennasýnatökum, fimm í sóttkvíar- og handahófsskimun og eitt á vegum Íslenskrar erfðagreiningar. Tekin voru 1.800 sýni. Af þeim sem greindust voru 22 í sóttkví en 39 utan sóttkvíar.
Tvö smit greindust við landamærin og er mótefnamælingar beðið.
652 eru í einangrun með virkt smit og 1.608 í sóttkví. Í skimunarsóttkví eru 1.577 manns, þangað fara þeir sem koma til landsins.
11 eru á sjúkrahúsi og fækkar um tvo frá í gær, þar af þrír á gjörgæslu og tveir þeirra í öndunarvél. Fólkið sem liggur á Landspítala vegna COVID-19 er á breiðu aldursbili. Sá yngsti er á þrítugsaldri og sá elsti á sjötugsaldri. Þeir sem eru á gjörgæslu eru á sextugs- og sjötugsaldri.
Nýgengi innanlandssmita, fjöldi nýrra smita síðustu tvær vikur á hverja 100.000 íbúa, er 145,9 og lækkar lítillega milli daga.