Á miðnætti tóku nýjar reglugerðir um takmarkanir á samkomuhaldi og skólastarfi sem kveða á um hertar aðgerðir til að sporna við útbreiðslu COVID-19 gildi. Þær gilda til og með 19. október næstkomandi. Hér má sjá um hvaða reglur ræðir:
- Samkomur fleiri en 20 manns eru bannaðar, með nokkrum undantekningum sem verða útlistaðar hér að neðan.
- Líkamsræktarstöðvum er óheimilt að hafa opið.
- Krám, skemmtistöðum og spilasölum er einnig bannað að halda úti starfsemi.
- Gestir á sundstöðum mega að hámarki vera 50% af leyfilegum fjölda samkvæmt starfsleyfi.
- Áfram gilda eins metra fjarlægðarmörk.
- Við aðstæður þar sem ómögulegt er að viðhafa eins metra fjarlægðarmörk er fólki skylt að nota andlitsgrímu.
Nú verða landsmenn að bíða með ræktarferðina í að minnsta kosti tvær vikur.
mbl.is/Kristinn Magnússon
Eftirtaldar eru undanþágur frá 20 manna hámarki. Þar gildir sem annars staðar að ef ekki er hægt að uppfylla eins metra nálægðarreglu er skylt að nota andlitsgrímu:
- Störf Alþingis eru undanskilin fjöldatakmörkunum.
- Dómstólar þegar þeir fara með dómsvald sitt.
- Viðbragðsaðilar, s.s. lögregla, slökkvilið, björgunarsveitir og heilbrigðisstarfsfólk, eru undanþegnir fjöldatakmörkunum við störf sín.
- Fjöldatakmörk við útfarir verða 50 manns.
- Verslunum undir 1.000 fm að stærð verður heimilt að hleypa 100 einstaklingum inn í sama rými á hverjum tíma og einum viðskiptavini til viðbótar fyrir hverja 10 fm umfram 1.000 fm en þó aldrei fleiri en 200 viðskiptavinum í allt.
- Sviðslistir: Heimilt verður að halda viðburði þar sem 100 manns koma saman í afmörkuðu hólfi. Sæti skulu vera númeruð, nafn gesta í hverju sæti skráð og öllum áhorfendum ber að nota andlitsgrímu.
- Í framhalds- og háskólum verður miðað við 30 manns.
Víða hefur grímuskylda verið tekin upp í framhaldsskólum en það er á borði hvers skóla fyrir sig að ákveða slíkt.
mbl.is/Eggert Jóhannesson
Aðrar undantekningar:
- Keppnisíþróttir með snertingu verða leyfðar með hámarksfjölda 50 einstaklinga að uppfylltum tilteknum skilyrðum.
- Áhorfendur á íþróttaleikjum: Óheimilt er að hafa áhorfendur á íþróttaviðburðum innandyra. Utandyra er heimilt að hafa áhorfendur, allt að 100 í hverju rými, að því gefnu að gestir sitji í númeruðum sæti sem skráð eru á nafn og noti andlitsgrímu.
Reglugerð um takmörkun á samkomum vegna farsóttar
Reglugerð um takmörkun á skólastarfi vegna farsóttar