Katrín fékk Svartfuglinn

Katrín Júlíusdóttir tók við verðlaununum ásamt sonum sínum frá Elizu …
Katrín Júlíusdóttir tók við verðlaununum ásamt sonum sínum frá Elizu Reid forsetafrú. mbl.is/Árni Sæberg

Eliza Reid, forsetafrú og bókmenntafrú, afhenti í dag Katrínu Júlíusdóttur, fyrrverandi þingmanni og ráðherra, Svartfuglinn fyrir spennusöguna Sykur, sem kom út í dag. Verðlaunin eru hugsuð fyrir höfunda sem ekki hafa sent frá sér spennu- eða glæpasögu áður. 

Í áliti dómnefndar um bókina segir m.a. að höfundi takist í liprum texta að draga upp mynd af sérlega trúverðugum persónum sem standi andspænis skelfilegum glæpum. „Fléttan er ákaflega vel unnin og samhliða henni er sögð átakanleg fjölskyldusaga. Persóna ódæðismannsins er afar haganlega samansett og sumstaðar má sjá að höfundurinn hefur góða innsýn í baksvið íslenskrar stjórnsýslu,“ segir í áliti dómnefndarinnar sem bætir við að bókin sé grípandi frá fyrstu síðu. 

Í fréttatilkynningu um málið segir að höfundarnir Yrsa Sigurðardóttir og Ragnar Jónasson hafi stofnað til verðlaunanna í samvinnu við útgefanda sinn, Veröld, en þetta var í þriðja sinn sem þau voru veitt. Verðlaunin nema 500.000 krónum auk hefðbundinna höfundarlauna. Einnig býðst þeim sem sigur ber úr býtum samningur við umboðsmanninn David H. Headley en tímaritið Bookseller útnefndi hann sem einn af 100 áhrifamestu mönnum breskrar bókaútgáfu árið 2015. 

Yrsa og Ragnar skipuðu dómnefndina ásamt Bjarna Þorsteinssyni, útgáfustjóra Veraldar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert