Fjölskyldu- og húsdýragarðurinn verður lokaður frá og með deginum í dag vegna hertra samkomutakmarkana.
Vinnu- og lesrými grunn- og meistaranema í Háskóla Íslands verða lokuð sem og Þjóðarbókhlaðan og háskólasafn Landsbókasafns Íslands.
Grímuskylda verður í öllum strætóum á höfuðborgarsvæðinu fyrir farþega og bílstjóra, að því er fram kemur í Morgunblaðinu í dag.