Fara yfir stöðu mála á upplýsingafundi

Víðir Reynisson og Þórólfur Guðnason á upplýsingafundi.
Víðir Reynisson og Þórólfur Guðnason á upplýsingafundi. Ljósmynd/Lögreglan

Upplýsingafundur almannavarna verður haldinn klukkan 15 í dag þar sem farið verður yfir stöðu mála vegna útbreiðslu kórónuveirunnar.

Að sögn Jóhanns K. Jóhannssonar, samskiptastjóra almannavarna, verða Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir og Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn á fundinum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert