Mikið umstang við sjónvarpsupptökur á Stokkseyri

Kvikmyndatakan á Stokkseyri.
Kvikmyndatakan á Stokkseyri.

Mikið umstang var á Stokkseyri í sl. viku þar sem stóðu yfir upptökur á raunveruleikaþáttunum Challenge fyrir MTV. Myndatökumenn filmuðu meðal annars þegar fólk stökk í sjóinn úr grind sem hífð var upp af bryggjunni.

Hafnarsvæðinu var lokað meðan á upptökum stóð og gæslumenn stugguðu við heimafólki sem ætlaði að fylgjast með því sem fram fór.

Einu sinni áður hefur Ísland verið í aðalhlutverki í Challenge-þáttunum, það er fyrir 22. seríu þeirra sem tekin var upp árið 2012, en nú er sú 36. í framleiðslu.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert