94 staðfest smit innanlands: 50 utan sóttkvíar

Ljósmynd/Landspítalinn

94 kórónuveirusmit hafa verið staðfest innanlands af þeim sýnum sem tekin voru í gær, þetta segir Jóhann K. Jóhannsson samskiptastjóri almannavarna. Átta smit greindust á landamærunum en enn er óljóst hvort einhver þeirra séu virk. 

40 voru í sóttkví af þeim sem greindust innanlands og því 54 utan sóttkvíar. 

Tölur á covid.is berast klukkan 11 og þá verður einnig haldinn upplýsingafundur almannavarna.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert