998 sjúklingar eru í eftirliti Covid-19-göngudeildar, að því er fram kemur í tilkynningu frá viðbragðsstjórn og farsóttanefnd Landspítala. 25 sjúklingar eru inniliggjandi vegna Covid-19 og hafa 44 legið þar frá upphafi þriðju bylgju faraldursins.
Af þeim sem liggja á Landspítala veikir af Covid-19 eru þrír á gjörgæslu og tveir þeirra í öndunarvél.
83 starfsmenn Landspítala eru í sóttkví A og 26 starfsmenn í einangrun, smitaðir af kórónuveirunni.
Landspítali er á hættustigi vegna faraldurs Covid-19. Viðbragðsáætlun Landspítala vegna farsótta hefur því verið virkjuð og funda viðbragðsstjórn og farsóttanefnd daglega.