Golfvöllum ekki lokað að frumkvæði GSÍ

mbl.is/Jóhannesson

Ákvörðun um lokun golfvalla á höfuðborgarsvæðinu til 19. október var ekki tekin tekin af Golfsambandi Íslands (GSÍ). Hún er tilkomin vegna tilmæla sóttvarnalæknis og almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra, að því er fram kemur í yfirlýsingu frá GSÍ. 

„Viðbragðshópur Golfsambands Íslands, sem skipaður er 12 fulltrúum frá 10 golfklúbbum af öllu landinu, ásamt fulltrúum úr stjórn GSÍ, hefur unnið saman að málum tengdum sóttvörnum og golfiðkun frá því í vor, sökum Covid-19. Í ljósi misvísandi upplýsinga og þeirrar gagnrýni sem beinst hefur að þeirri ákvörðun að loka golfvöllum á höfuðborgarsvæðinu vill viðbragðshópur GSÍ koma á framfæri eftirfarandi skýringum. Með því vonast hópurinn til að varpa ljósi á málavexti og ástæður að baki niðurstöðunni.“

Eins og áður hefur komið fram beindi sóttvarnalæknir þeim tilmælum til íþróttahreyfingarinnar í heild sinni 8. október síðastliðinn að láta af öllu íþróttastarfi á höfuðborgarsvæðinu, skipulögðu sem óskipulögðu, til 19. október. 

„Þegar viðbragðshópurinn kom saman til ákvörðunartöku hinn 8. október lá fyrir að reglugerð heilbrigðisráðherra og fyrirmæli sóttvarnayfirvalda fóru ekki saman að öllu leyti. Á sama tíma og reglugerð ráðherra leggur ekki bann við íþróttaiðkun utandyra þá ganga tilmæli sóttvarnayfirvalda lengra og taka einnig til íþróttaiðkunar utandyra. Þrátt fyrir þetta misræmi kemur fram á heimasíðu heilbrigðisráðuneytisins að fólk sé engu að síður hvatt til þess að fylgja tilmælum sóttvarnayfirvalda, sem gangi lengra en reglugerðin.“

Telja mögulegt að spila golf og gæta að sóttvörnum

Hópurinn kallaði eftir skýringum vegna misræmis, sem og staðfestingu á því að tilmæli sóttvarnayfirvalda næðu einnig til golfiðkunar, enda telur hópurinn að vel sé hægt að stunda golf og gæta að sóttvörnum á sama tíma.

„Eftir samtal og samráð við fulltrúa Íþrótta- og ólympíusambands Íslands og almannavarnadeild ríkislögreglustjóra var staðan metin að morgni 9. október. Lá þá fyrir munnleg staðfesting sóttvarnayfirvalda um að mælst væri til þess að golfvöllum á höfuðborgarsvæðinu yrði lokað.

Vegna hinna skýru og afdráttarlausu tilmæla ákvað viðbragðshópurinn að beina því til golfklúbba á höfuðborgarsvæðinu að loka umsvifalaust sínum golfvallasvæðum til 19. október. Kylfingar á höfuðborgarsvæðinu voru jafnframt hvattir til þess að takmarka ferðalög frá höfuðborgarsvæðinu. Ákvörðun viðbragðshópsins var tekin eftir miklar umræður og var hún engan veginn léttvæg. Full samstaða var innan hópsins um ákvörðunina.“

Viðbragðshópurinn hittist aftur í gær, 10. október, í þeim tilgangi að endurmeta stöðuna, „ekki síst vegna þess að kylfingar höfðu margir fengið misvísandi skilaboð um forsendur að baki ákvörðuninni og því slegið föstu að lokun golfvalla væri að frumkvæði golfsambandsins“.

„Því fer fjarri. Viðbragðshópurinn óskaði því eftir skriflegri staðfestingu Víðis Reynissonar, yfirlögregluþjóns hjá almannavarnadeild ríkislögreglustjóra, sem nú hefur borist, þess efnis að tilmæli sóttvarnayfirvalda taki til golfiðkunar og af þeim sökum skuli golfvellir á höfuðborgarsvæðinu vera lokaðir til 19. október. Tilmæli sóttvarnayfirvalda eru skýr og stendur niðurstaða viðbragðshópsins því enn óbreytt. Á sama tíma og hópurinn áttar sig fyllilega á því hversu leiðinlegt það er að geta ekki lokið síðustu dögum golftímabilsins þá biðjum við kylfinga að sýna ákvörðuninni skilning og virða hana.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert