Ábending sem barst Neyðarlínunni, um eld í húsbíl við Torfastaði í Grafningi í Árnessýslu skömmu fyrir miðnætti á föstudagskvöld skilaði sér ekki til lögreglunnar.
Lögreglu barst svo önnur tilkynning daginn eftir, klukkan 13.30 á laugardag. Þá var bíllinn illa útleikinn og mikið brunninn. Leiddi rannsókn í ljós að líkamsleifar manns á fertugsaldri voru í bílnum.
Oddur Árnason, yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á Suðurlandi, staðfestir þetta í samtali við Morgunblaðið. Hann segir að skoðað verði hvernig stendur á því að tilkynningin hafi ekki ratað á borð lögreglu.
Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins voru það sumarhúsaeigendur í Grafningi sem hringdu í Neyðarlínuna á föstudagskvöld, þar sem þeir þóttust sjá eld hinum megin Sogsins. Töldu þeir sig einnig sjá bremsuljós bifreiðar. Sú bifreið getur þó ekki verið húsbíllinn sem brann enda sneri framendi hans í átt að vatninu.
Starfsmaður Neyðarlínunnar hafi vísað þeim áfram á lögreglu en þar hafi síminn hringt út.
Rannsókn lögreglu á eldsvoðanum stendur yfir, en á meðan verst lögregla allra fregna af atburðarásinni. Þannig fást ekki upplýsingar um það hvenær talið er að eldurinn hafi kviknað eða hvort grunur leiki á um íkveikju.
„Það eru allir mögulegir þættir rannsakaðir, en við viljum helst ekki móta neitt um það fyrir fram,“ segir Oddur. Lögregla hafi óskað eftir ábendingum frá vitnum og einhverjir haft sam- band. Þá séu þeir sem vita meira um málið hvattir til að láta í sér heyra.