Haustveðrið hefur verið einstaklega fallegt á höfuðborgarsvæðinu undanfarið og margir nýtt tækifærið í útiveru.
Lokun líkamsræktarstöðva hefur einnig eflaust orðið til þess að fleiri hafa sótt í hreyfingu úti í náttúrunni eins og þessi kona gerði þegar hún skellti sér út að skokka á Laugarnesi í Reykjavík.
Landlæknir mælir með því að fólk hreyfi sig rösklega í minnst 30 mínútur daglega á tímum kórónuveiru.