Jólabærinn Hafnarfjörður er á leið í jólafötin þessa dagana og er unnið hörðum höndum að því að setja upp jólaljós í bænum. Þetta kemur fram á vef Hafnarfjarðar, þar sem segir að ákveðið hafi verið að setja jólaljósin snemma upp í ár í ljósi ástandsins.
Íbúar eru hvattir til þess að taka jólaljósin fram snemma í ár.
„Nú þegar hafa jólaljós verið sett upp á nokkrum fjölförnum stöðum í bænum með það fyrir augum að gleðja augað og andann og lýsa upp skammdegið. Jólabærinn Hafnarfjörður er við það að detta í jólagírinn!“ segir á vefnum.
Við hjá Árvakri viljum vekja athygli á því sem vel er gert á þessum erfiðu tímum. Ef þú ert með góða sögu af fyrirtækjum og einstaklingum sem eru að gera gott, sendu okkur ábendingu á netfangið stondumsaman@mbl.is.