„Sem brottfluttum Pólverjum þykir okkur mjög leitt að geta ekki mótmælt með samlöndum okkar því helvíti sem konum er gert að búa við,“ sagði meðal annars í yfirskrift mótmæla sem haldin voru fyrir utan sendiráð Póllands fyrr í kvöld.
Þar kom nokkur hópur fólks saman og mótmælti breytingum á lögum um þungunarrof í Póllandi sem tóku gildi á fimmtudaginn.
Þegar giltu ströng skilyrði fyrir þungunarrofi í Póllandi og hafa þau nú verið hert enn frekar. Þungunarrof er nú svo gott sem algjörlega ólöglegt í Póllandi.
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra tísti í dag um stöðu réttinda kvenna í Póllandi en hún hefur áhyggjur af sjálfsákvörðunarrétti kvenna og kynfrelsi þeirra.