Von er á Norrænu til Seyðisfjarðar í fyrramálið. Að sögn lögreglunnar á Austurlandi kom í ljós, skömmu eftir brottför ferjunnar frá Hirtshals í Danmörku á laugardag, að tveir farþegar voru smitaðir af Covid-19.
„Tveir farþegar voru með þeim í för en reyndust ósmitaðir og hafa þeir verið í sóttkví um borð. Enginn þessara fjögurra hefur einkenni smits og ekki er talin ástæða til að ætla að smit hafi borist í farþega eða áhöfn,“ segir í Facebook-færslu lögreglunnar á Austurlandi.
Fjórmenningarnir munu fara í sýnatöku við komu og ætti niðurstaða hennar að liggja fyrir síðdegis á morgun eða annað kvöld. Áframhaldandi sóttkví bíður þeirra og einangrun í samræmi við reglur.
Þá segir að sýni verði tekin af öllum 27 farþegum samkvæmt venju við komu til Seyðisfjarðar sem svo verði í sóttkví þar til niðurstaða liggur fyrir í seinni skimun að fimm til sex dögum liðnum.