Sveitarfélögin og almannavarnir á höfuðborgarsvæðinu hafa ákveðið að hafa skipulagsdag í leik- og grunnskólum, tónlistarskólum og frístundastarfi á mánudaginn vegna hertra sóttvarnarreglna stjórnvalda til varnar COVID-19.
Þetta kemur fram í tilkynningu.
Mánudagurinn verður notaður til að skipuleggja starfið með kennurum og öðru starfsfólki.
Leik- og grunnskólabörn eiga því ekki að mæta í skólann á mánudaginn en nánari upplýsingar um skólastarfið verða sendar frá skólunum til foreldra og forráðamanna um áframhald skólastarfsins.
Skóla- og frístundastarf mun hefjast aftur með breyttu sniði þriðjudaginn 3. nóvember.