Steingrímur J. Sigfússon, forseti Alþingis, hyggst ekki gefa kost á sér til að leiða framboð VG í alþingiskosningunum á næsta ári. Þetta kom fram í máli Steingríms á fundi kjördæmisráðs Norðausturkjördæmis nú rétt í þessu.
Steingrímur er fyrrverandi fjármálaráðherra og var lengst af formaður Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs.
„Steingrímur sagðist hætta sáttur og mjög stoltur af árangri hreyfingarinnar. Þá kvaðst hann vera bjartsýnn á framtíð VG í landsmálunum, hún hefði verið til góðs fyrir samfélagið og þannig yrði það áfram,“ segir í tilkynningu frá VG.
„Katrín Jakobsdóttir, formaður VG sagðist aldrei hafa haft eins mikla löngun til að vera á staðfundi en ekki fjarfundi, til að geta staðið upp og klappað fyrir Steingrími. Þegar hún þakkaði honum fyrir samstarfið og þau fjölmörgu störf sem hann hefur gegnt í stjórnmálunum.“
Steingrímur er fæddur á Gunnarsstöðum í Þistilfirði 4. ágúst 1955. Hann hefur setið á Alþingi fyrir Norðurlandskjördæmi eystra og síðan Norðausturkjördæmi frá því 1983 og er með lengsta þingreynslu allra núverandi þingmanna.
„Hann hefur leitt framboðslista í síðustu 11 alþingiskosningum og verið í framboði í öllum kosningum síðan 1978. Hann sat fyrst á þingi fyrir Alþýðubandalagið, var formaður þingflokks Alþýðubandalagsins um tíma. Vatnaskil urðu 1999 þegar Steingrímur stofnaði Vinstri Græn ásamt fleiri félögum,“ segir í tilkynningu.
„ Steingrímur hefur á sínum langa þingferli verið landbúnaðar- og samgönguráðherra, fjármála, sjávarútvegs og landbúnaðarráðherra, efnahags og viðskiptaráðherra og atvinnuvega og nýsköpunarráðherra. Þá hefur Steingrímur verið leiðandi í norrænu samstarfi bæði í Norðurlandaráði og Vestnorræna ráðinu. Hann hefur verið forseti Alþingis, fyrst í stuttan tíma 2016 og fram í janúar 2017 og síðan aftur frá því eftir kosningar 2017 og er enn. Lesa má um feril Steingríms J. Sigfússonar í bókinni Saga VG sem kom út á 20 ára afmæli hreyfingarinnar og í bókum sem hann hefur sjálfur skrifað.“