Smit á hjúkrunarheimilinu Mörk

Hjúkrunarheimilið Mörk í Vogahverfi hefur tilkynnt að einn heimilismaður hafi …
Hjúkrunarheimilið Mörk í Vogahverfi hefur tilkynnt að einn heimilismaður hafi greinst með kórónuveiruna. mbl.is/Gúna

Heimilismaður á hjúkrunarheimilinu Mörk greindist smitaður af kórónuveirunni síðdegis í dag, að því er fram kemur í tlkynningu frá Mörk. Þar segir að í kjölfar samráðs við smitsjúkdómalækna hafi verið ákveðið að leggja viðkomandi inn á Landspítala.

Í samræmi við gildandi verkferla í Mörk hefur viðbúnaðarstig verið ræst, en ekki er „vitað hvaðan eða hvernig smitið barst í hús. Að undanförnu hefur enginn starfsmaður á hæðinni hans verið í sóttkví, veikur eða með einkenni Covid“.

Heimilismenn sem voru á sömu hæð og sá er smitaðist og þeir starfsmenn sem önnuðust um hann hafa verið settir í sóttkví.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert