Andlát vegna Covid

mbl.is

Einn sjúk­ling­ur lést á Land­spít­al­an­um í gær vegna Covid-19. Þetta kem­ur fram á vef spítalans.

Alls hafa því sjö lát­ist af völd­um veirunn­ar frá því þriðja bylgj­an hófst. All­ir hafa þeir lát­ist á Land­spít­al­an­um á rúm­um tveim­ur vik­um en til­kynnt var um fyrsta and­látið í þess­ari bylgju 16. októ­ber eða fyr­ir 18 dög­um.

17 hafa lát­ist af völd­um Covid-19 á Íslandi, tíu í fyrstu bylgju far­ald­urs­ins og sjö nú í þeirri þriðju. Land­spít­al­inn vott­ar aðstand­end­um samúð á vef spít­al­ans.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert