Ekið á hross í Eyjafirði

Lögreglustöðin á Akureyri.
Lögreglustöðin á Akureyri. mbl.is/Sigurður Bogi Sævarsson

Ekið var á hross á Eyjafjarðarbraut vestari á tólfta tímanum í gærkvöldi að sögn varðstjóra í lögreglunni á Akureyri. 

Hrossið drapst við áreksturinn og bíllinn er mikið skemmdur. Ökumaðurinn, sem var einn í bílnum, kvartaði undan eymslum í höfði og fór á slysadeild Sjúkrahússins á Akureyri en ekki er talið að meiðsl hans séu alvarleg. 

Ekki er vitað hvað varð til þess að hrossið hljóp út á veginn. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert