Lárus Sigurður Lárusson lögmaður hefur beðist lausnar sem formaður Menntasjóðs námsmanna, vegna dóms sem féll í Héraðsdómi Reykjavíkur í liðinni viku og varðaði störf hans fyrir þrotabú fasteignafélagsins Þóroddsstaða ehf.
Fram kemur í yfirlýsingu sem Lárus hefur sent frá sér, að hann sé ósammála niðurstöðu dómsins og kanni nú forsendur áfrýjunar. Hann telji mjög brýnt að deilumál vegna þrotabúsins hafi ekki áhrif á önnur störf hans, þ.m.t. vinnu hans fyrir Menntasjóð námsmanna.
„Menntasjóður námsmanna er afar mikilvæg stofnun sem gegnir grundvallarhlutverki í samfélaginu. Því er brýnt að friður ríki um stjórn og starfsemi Menntasjóðsins og það góða starf sem þar er unnið fái að halda áfram án óþarfa gagnrýni. Ég hef af þessum sökum beðist lausnar sem formaður Menntasjóðs, og einnig undan öðrum trúnaðarstörfum mínum. Ég hef þegar tilkynnt menntamálaráðherra þessa ákvörðun,“ segir Lárus í yfirlýsingunni.