Áberandi brim var við Gróttuvita á Seltjarnarnesi þegar ljósmyndari Morgunblaðsins átti þar leið um í gærkvöldi.
Veðurstofan hafði gefið út gula viðvörun fyrir mestallt landið, en lægði hratt þegar leið á kvöldið.
Mestur vindur var líklega á Bolungarvík þar sem hann náði 22 metrum á sekúndu um tíuleytið. Veturinn er rétt handan við hornið.