Einn lögreglumaður hjá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu hefur verið leystur undan starfsskyldum sínum tímabundið vegna handtöku manns í Hafnarfirði sl. mánudag.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni.
Lögreglan hefur vísað málinu til rannsóknar hjá héraðssaksóknara. Lögreglan er sökuð um að hafa beitt harðræði við handtökuna.
Í Fréttablaðinu í dag kemur fram að fjórir lögregluþjónar, sem handtóku karlmann við Hvaleyrarholt í Hafnarfirði hafi gengið allt of langt í aðgerðum sínum að sögn þriggja sjónarvotta.
„Þetta var ógeðslegt, eins og í bíómynd,“ segir sjónarvottur sem ekki vill láta nafns síns getið. Hann lýsir því hvernig einn lögregluþjónanna beitti piparúða á manninn og annar lögregluþjónn sló hann ítrekað í höfuðið með kylfu þar til hann rotaðist og féll í jörðina.