Vetur konungur minnti á sig á höfuðborgarsvæðinu

Snjóföl í Reykjavík.
Snjóföl í Reykjavík. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Íbúar á höfuðborgarsvæðinu hafa þurft að ganga í gegnum ýmislegt síðustu mánuðina eins og landsmenn allir.

Veðrið hefur þó verið með skárra móti en í gær minnti vetur konungur hressilega á sig.

Víða gekk á með hríðarbyljum og í efri byggðum snjóaði talsvert. Áfram má búast við úrkomu um helgina en hætt er við að rigni sunnan heiða. Vissara er þó að búa sig vel fyrir gönguferðir eins og þessi gerði í Kórahverfinu.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert