Tveir sjúklingar létust af völdum Covid-19 á Landspítalanum í gær. Þeir voru á áttræðis- og níræðisaldri. Þetta staðfestir Jóhann K. Jóhannsson, samskiptastjóri ríkislögreglustjóra, í samtali við mbl.is.
Alls hafa 20 látist af völdum kórónuveirunnar hér á landi frá því faraldurinn hófst. Tíu létust í fyrstu bylgjunni á vormánuðum og tíu hafa látist nú í haust.