Ekki best að hafa fólk heima

Öldruðum mun fjölga á næstu árum og áratugum og stórauka …
Öldruðum mun fjölga á næstu árum og áratugum og stórauka þarf þjónustuna. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Fyrrverandi forstjóri heilbrigðisstofnunar segir það bábilju að alltaf sé betra að sinna öldruðu fólki á heimilum þess í stað þess að það flytji á hjúkrunarheimili, ef vilji og heilsubrestur kalli á það. Þingmaður sem er jafnframt öldrunarlæknir hefur aftur á móti enga trú á því að næstu kynslóðir muni sætta sig við búsetu á stofnunum.

„Þessi kenning er röng og þótt það geti átt við í þeim tilfellum þar sem fólk er tiltölulega hresst hafa ekki verið færðar fyrir því neinar sannanir eða flutt fyrir því rök að það sé ódýrara að geyma fólk heima,“ segir Valbjörn Steingrímsson, fyrrverandi forstjóri Heilbrigðisstofnunarinnar á Blönduósi, um þá stefnu að veita öldruðum þjónustu heima til að draga úr þörf fyrir hjúkrunarheimili. Dýrt sé að reka heimili og lífeyrir standi ekki undir því. Það auki fátækt, einsemd og vanlíðan að þvinga fólk til þess.

Heppilegra fyrir fólkið

Ólafur Þór Gunnarsson, þingmaður og öldrunarlæknir, segir að bæta þurfi heimaþjónustu og heimahjúkrun vegna þess að það fyrirkomulag muni fólk vilja í framtíðinni. Það verði hagkvæmara fyrir samfélagið og alveg örugglega heppilegra fyrir fólkið sem noti þjónustuna.

„Eins og kerfið er uppbyggt núna er allt of mikil áhersla lögð á að fólk fari inn á hjúkrunarheimili þegar í mörgum tilvikum er hægt að mæta þörfum þess betur og með minni tilkostnaði með aukinni stuðningsþjónustu heima,“ segir Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra í umfjöllun um mál þetta í Morgunblaðinu í dag. Hún segir jafnframt að þótt mikill árangur náist á því sviði þurfi engu að síður að fjölga hjúkrunarrýmum og að því sé unnið.

Nánar má lesa um þetta mál hér.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert