Heiða Björg Hilmisdóttir, formaður velferðarráðs Reykjavíkurborgar, segir að málefni vistheimilisins Arnarholts verði tekin til skoðunar innan ráðsins strax á morgun.
RÚV greindi í kvöld frá því að veikt fólk sem dvaldi á Arnarholti á Kjalarnesi til ársins 1971 hafi verið sett í einangrun í litlum fangaklefa vikum saman eftir því sem fram kemur í tæplega 50 ára gömlum vitnaleiðslum yfir starfsfólki.
Arnarholt var fyrst opnað árið 1945 og var rekið af Reykjavíkurborg til 1. september 1971. Í vitnaleiðslum yfir starfsmönnunum 24 er því meðal annars lýst hvernig vistmönnum var refsað með því að vera neitað um mat. Þá virðist þeim einnig hafa verið refsað með því að vera læstir úti hvernig sem viðraði. Algengast virðist hafa verið að heimilismönnum væri refsað með því að vera settir í steinsteyptan einangrunarklefa með einum litlum glugga sem búið var að setja járnrimla fyrir.
Alvarlegustu atvikin sem greint var frá í vitnaleiðslunum varða þó andlát heimilismanna sem virðast hafa verið nokkuð tíð á þessum tíma og lýsir starfsfólkið nokkrum slíkum tilvikum. Greindu starfsmenn meðal annars frá því að þegar það uppgötvaðist dag einn að kona sem bjó á heimilinu væri týnd og að hennar hafi verið saknað frá deginum áður hafi leit ekki verið hafin, en konan fannst látin í flæðarmálinu stuttu síðar.
Heiða Björg segir að málið verði skoðað innan velferðarráðs.
„Þetta var auðvitað bara hræðileg frétt og ömurlegur aðbúnaður sem fólk hefur greinilega búið við þarna. Við munum skoða þetta bara strax á morgun og fá upplýsingar um hvernig þetta var og hvernig aðkoma borgarinnar var,“ segir Heiða í samtali við mbl.is.
„Mér finnst þetta hljóma mjög alvarlegt og það er mikilvægt að skoða þetta og læra af. Það er hörmulegt ef borgin hefur tengst svona máli á sínum tíma,“ segir Heiða.