Skýrsla um alvarlega hópsýkingu afhjúpuð

Hópsýkingin kom upp á Landakoti í októbermánuði.
Hópsýkingin kom upp á Landakoti í októbermánuði. mbl.is/Sigurður Bogi

Landspítali hefur boðað til blaðamannafundar á morgun þar sem skýrsla um alvarlega hópsýkingu Covid-19 verður kynnt. Sýkingin kom upp á Landakoti í október. 

Á fundinum verða Páll Matthíasson forstjóri, Már Kristjánsson formaður farsóttarnefndar og yfirlæknir smitsjúkdómadeildar og Sigríður Gunnarsdóttir framkvæmdastjóri hjúkrunar,“ segir í tilkynningu um fundinn. Hann fer fram klukkan 15.00 á morgun. 

Að minnsta kosti tíu andlát hafa verið rakin til hópsýkingarinnar og á annað hundrað smit kórónuveiru. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert