Brutu sóttvarnalög og staðnum lokað

Lögreglan lokaði veitingahúsi í Vatnsendahverfi í Kópavogi (hverfi 203) í gærkvöldi vegna brota á sóttvarnalögum. 

Á staðnum voru 18 gestir og tveir starfsmenn, enginn með grímu og tveggja metra regla ekki virt. Staðurinn hafði auglýst opið fyrir viðskiptavini meðan landsleikur Íslands í fótbolta færi fram. 

Lögreglan vísaði gestum út og lokaði staðnum. Rekstraraðili staðarins verður kærður fyrir brot á sóttvarnalögum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert