Fjórar spítalabyggingar Landspítala hafa ekki eiginlegt loftræstikerfi en eins og áður hefur verið greint frá er engin loftræsting á Landakoti og var sá þáttur talinn veigamikil orsök hópsmits sem þar kom upp.
Takmörkuð loftræsting er á geðdeildum á Kleppi, endurhæfingardeild á Grensási og öldrunardeildum á Vífilsstöðum. Þar eru sjúkrarými með opnanlegum gluggum og útsog af baðherbergjum.
Þetta kemur fram í skriflegu svari frá Landspítala við fyrirspurn Ríkisútvarpsins.
Tólf létust af völdum hópsýkingarinnar á Landakoti og kom fram í skýrslu sem spítalinn birti fyrir helgi að ástand húsnæðis, loftskipta og aðbúnaðar á Landakoti væri ófullnægjandi með tilliti til sýkingarvarnasjónarmiða. Það væri líklega meginorsök dreifingar smita innan Landakots.