Góði hirðirinn með miðborgarverslun

Á Hverfisgötu. Verslunin verður opnuð á fimmtudag. Þar eru m.a. …
Á Hverfisgötu. Verslunin verður opnuð á fimmtudag. Þar eru m.a. húsgögn. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Ruth Einarsdóttir, rekstrarstjóri Góða hirðisins, segir nýrri verslun á Hverfisgötu 94-96 meðal annars ætlað að höfða til ungs fólks sem er að koma sér fyrir í miðborginni.

„Unga kynslóðin hugsar mikið um að endurnýta hlutina. Við sjáum þetta birtast í breytingu á viðskiptamannahópnum í Fellsmúla en sala til yngra fólks hefur aukist mikið síðustu tvö ár. Ég held að unga kynslóðin sé orðin vel meðvituð um þessa hluti. Ég heyri þetta þegar ég ræði við unga viðskiptavini. Þetta er raunveruleg breyting í verslun.“

Í umfjöllun Morgunblaðsins um verslunina nýju, sem opnar á fimmtudag, segir Ruth mikla sölu nýrra húsgagna í ár skila sér í auknu framboði á notuðum húsgögnum. Þau komi meðal annars úr Airbnb-íbúðum sem hafi verið teknar úr leigu í kórónuveirufaraldrinum.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert