Að minnsta kosti þremur starfsmönnum Ríkisútvarpsins var sagt upp í gær. Fleiri starfsmönnum hefur einnig verið tilkynnt að starfshlutfall þeirra verði lækkað.
Þetta herma heimildir mbl.is.
Jóhann Hlíðar Harðarson, reyndur fréttamaður Ríkisútvarpsins til margra ára, er á meðal þeirra sem sagt hefur verið upp. Hann staðfestir uppsögnina í samtali við mbl.is.