Lögreglan hafði afskipti af æfingu annars flokks Stjörnunnar í knattspyrnu fyrr í vikunni. Þetta herma heimildir mbl.is, en myndir af atvikinu fylgja fréttinni. Samkvæmt upplýsingum mbl.is voru þjálfarar flokksins ekki viðstaddir þegar lögregluna bar að garði.
Ásgeir Þór Ásgeirsson, yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, segist aðspurður geta staðfest að lögreglunni hafi verið tilkynnt um æfingu annars flokks knattspyrnuliðs. Hann geti þó ekki sagt um hvaða lið ræði.
Samkvæmt upplýsingum mbl.is ræddu lögreglumenn við aðila í félagsheimilinu Stjörnunnar eftir að atvikið kom upp.