Hvergi í Evrópu eru jafn fá kórónuveirusmit á hverja 100 þúsund íbúa og á Íslandi samkvæmt tölum evrópsku sóttvarnastofnunarinnar í morgun. Ísland og Finnland eru einu ríkin sem eru með undir 100 smit á hverja 100 þúsund íbúa. Flest eru smitin í Lúxemborg.
Samkvæmt tölum stofnunarinnar eru 57,7 smit á hverja 100 þúsund íbúa á Íslandi síðustu tvær vikur en samkvæmt covid.is er þau enn færri ef horft er til smita innanlands eða 43,6.
Í Lúxemborg eru smitin 1.186 talsins og 1.065,7 í Austurríki. Í Slóveníu eru þau 961,7 og 876 í Króatíu. Í Portúgal eru skráð 802,1 smit á hverja 100 þúsund íbúa í dag.
Á Norðurlöndunum er staðan þessi:
Ísland er meðal þeirra ríkja sem Sóttvarnastofnun Evrópu heldur utan um upplýsingar um en það eru ríki ESB, EES og Bretlands.
Nýjar uppfærðar tölur um nýgengi smita á hverja 100 þúsund íbúa eru birtar á vef stofnunarinnar klukkan 11 alla morgna.
Kortið er uppfært á fimmtudögum og er til stuðnings aðgerðum Evrópska efnahagssvæðisins um frjálsa för á tímum Covid-19.
Takmarkanirnar snúa að stöðu Covid-19-faraldursins í hverju landi fyrir sig. Samræmdir litakóðar gefa til kynna stöðu faraldursins í hverju landi fyrir sig. Ferðatakmarkanir taka tillit til þess hver staðan er hverju sinni.
Kveðið er á um tiltekin lykilviðmið þegar ákvörðun er tekin um að hefta frjálsa för vegna COVID-19-faraldursins, og eru þau eftirtalin: