Andlát: Halldór Grönvold

Halldór Grönvold
Halldór Grönvold

Halldór Grönvold, aðstoðarframkvæmdastjóri ASÍ, lést á Landspítalanum þann 18. nóvember sl. eftir stutt veikindi, 66 ára að aldri.

Halldór fæddist í Reykjavík 8. mars 1954 og ólst þar upp. Foreldar hans voru Kveldúlfur Grönvold, f. 1901, d. 1962, og Emilía Oddbjörg Grönvold, f. 1912, d. 1996.

Halldór helgaði verkalýðshreyfingunni starfsævi sína eftir að hann lauk námi í vinnumarkaðsfræðum við University of Warwick á Englandi. Fyrst starfaði hann hjá Iðju, félagi verksmiðjufólks í Reykjavík, en frá árinu 1993 á skrifstofu Alþýðusambandsins. Þangað var hann ráðinn sem skrifstofustjóri en frá árinu 2001 var Halldór aðstoðarframkvæmdastjóri ASÍ auk þess að leiða deild félags- og vinnumarkaðsmála hjá sambandinu.

Halldór vann alla tíð ötullega að réttindum launafólks. Hann sat í stjórn Vinnumálastofnunar frá 1996 og beitti sér mjög í fræðslumálum innan verkalýðshreyfingarinnar og þá einkum starfsmenntamálum. Hann tók þátt í samningum á Evrópuvísu um fjölskylduvænni vinnustaði og breytingu á vinnutímatilskipuninni ásamt fæðingar- og foreldraorlofi. Hann barðist fyrir breytingum á fæðingarorlofslöggjöfinni sem náðust árið 2000, þar á meðal rétti feðra til töku fæðingarorlofs. Á síðustu árum hefur Halldór sérstaklega beitt sér fyrir aðgerðum til að uppræta brotastarfsemi á vinnumarkaði.

„Það má fullyrða að fáir hafi haft eins mikil áhrif á mótun íslenska vinnumarkaðsmódelsins og Halldór Grönvold. Hann var einlægur verkalýðssinni og jafnaðarmaður, traustur og góður félagi með yfirburðaþekkingu á vinnumarkaðsmálum. Óhætt er að segja að stórt skarð sé höggvið í raðir starfsmanna ASÍ, bæði sem hreyfingar og vinnustaðar, við fráfall Halldórs,“ segir í tilkynningu frá ASÍ.

Eftirlifandi eiginkona Halldórs Grönvold er Greta Baldursdóttir, fyrrverandi hæstaréttardómari. Þau eignuðust tvö börn, Evu og Arnar, og eru barnabörn þeirra nú þrjú.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert