Alls greindust 11 kórónuveirusmit innanlands í gær. Aðeins þrír voru í sóttkví við greiningu eða 27,27%.
Í einangrun eru 166 og á sjúkrahúsi eru 45 sjúklingar með Covid-19. Þar af eru tveir á gjörgæslu. Á milli daga hefur einstaklingum í einangrun fækkað um 10 þar sem þeir voru alls 176 talsins í gær. Á landamærunum bíða fjórir niðurstöðu úr mótefnamælingu.
Mjög hefur fjölgað í sóttkví, fóru úr 291 í 446 á milli daga. Í skimunarsóttkví eru 846 en voru 878 í gær.
Tæplega 700 sýni voru tekin innanlands í gær en rúmlega 200 á landamærunum.
2 börn yngri en eins árs eru í einangrun, 7 börn á aldrinum 1-5 ára eru í einangrun og 10 börn 6-12 ára. 5 börn á aldrinum 13-17 ára er með Covid-19 í dag. Í aldurshópnum 18-29 ára eru 30 smit, á fertugsaldri eru smitin nú 35 talsins en í aldurshópnum 40-49 eru 20 smit. Á sextugsaldri eru 30 með Covid og á sjötugsaldri eru 17 smit. 5 eru með Covid á aldrinum 70-79 ára, 4 á níræðisaldri og 1 einstaklingur yfir nírætt eru með veiruna að því er fram kemur á covid.is.
Á höfuðborgarsvæðinu eru 135 í einangrun og 386 eru í sóttkví. Á Suðurnesjum eru 4 smitaðir en 14 í sóttkví. Á Suðurlandi eru 2 smit en 15 í sóttkví. Á Austurlandi er eitt smit og og 1 í sóttkví. Á Norðurlandi eystra eru 19 smit og 20 í sóttkví. Á Norðvesturlandi er ekkert smit og enginn í sóttkví. Á Vestfjörðum er ekkert smit og 3 í sóttkví og á Vesturlandi eru 5 smit og 7 í sóttkví.