Formaður Landsbjargar segir að vel sé hægt að sjá fyrir sér að meira álag verði á björgunarsveitunum á meðan engin þyrla á vegum landhelgisgæslunnar verður tiltæk. Vegna verkfalls flugvirkja verður engin þyrla tiltæk í dag og á morgun og jafnvel lengur. Landsbjörg hefur „þungar áhyggjur“ af ástandinu.
Björgunarsveitir landsins eru ekki í sérstakri viðbragðsstöðu vegna þyrluleysisins.
„En við höfum þungar áhyggjur af þessu ástandi og það er bara þannig að gæslan og þyrlur gæslunnar eru bara einn hlekkur í viðbragðskeðjunni, ákaflega mikilvægur hlekkur. Því til viðbótar eru þyrlur gæslunnar öryggistæki fyrir aðra viðbragðsaðila,“ segir Þór Þorsteinsson formaður Landsbjargar.
Aðspurður segir Þór vel hægt að sjá það fyrir sér að það verði meira álag á björgunarsveitunum vegna þyrluleysisins.
Miklu vonskuveðri er spáð á landinu í dag.
Eins og mbl.is greindi frá í gær þá hefur heilbrigðisráðuneytið mælst til þess að stjórnendur heilbrigðisstofnana hugi „sérstaklega að þeim þætti sjúkraflutninga sem snýr að tækjum og búnaði til flutnings en einnig að mönnun og faglegum stuðningi við bráðatilfelli á hverjum stað,“ vegna þess að engin þyrla verður tiltæk.