Appelsínugul veðurviðvörun er í gildi á Faxaflóasvæðinu og Breiðafirði og samskonar viðvörun tekur gildi í kvöld á Vestfjörðum og Ströndum og Norðurlandi vestra. Búið var að gefa út gula viðvörun fyrir síðarnefndu svæðin en Veðurstofan hefur hækkað viðvörunarstigið.
Í þessum landshlutum má gera ráð fyrir suðvestan roki með dimmum éljum. Skyggni verður mjög lítið og fjallvegir eru eða verða mjög líklega ófærir.
Á vef Vegagerðarinnar kemur fram að óveður er á Snæfellsnesi. Hálka eða hálkublettir á flestum leiðum og víða skafrenningur.
Á Vestfjörðum er einnig víða hálka eða hálkublettir. Ófært er um Dynjandisheiði og norður í Árneshrepp og mjög hvasst á Kletthálsi.
Auk þessara viðvarana eru gular veðurviðvaranir í gildi á höfuðborgarsvæðinu, Suðurlandi, Norðurlandi eystra og Miðhálendinu. Heldur hefur dimmt yfir höfuðborgarsvæðinu og gengur þar á með dimmum éljum.