Gildistími ferðagjafar verði framlengdur

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra.
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra. mbl.is/Kristinn Magnússon

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, hefur kynnt ríkisstjórn frumvarp um framlengingu á lögum um ferðagjöf. Með breytingunni verður gildistími þeirra ferðagjafa sem ekki hafa verið nýttar eða ekki nýttar til fulls framlengdur til 31. maí 2021, eða um fimm mánuði.  

Einstaklingar með íslenska kennitölu og skráð lögheimili á Íslandi, fæddir 2002 og fyrr, fengu Ferðagjöf að andvirði 5.000 kr. í júní. Gjöfin er liður í því að styðja við bakið á íslenskri ferðaþjónustu í kjölfar heimsfaraldurs kórónuveiru, að því er segir í tilkynningu.

Ferðagjöfin hafði gildistíma til áramóta, en með því að framlengja gildistímann má nýta þegar ætlað fjármagn til að veita ferðaþjónustufyrirtækjum hérlendis frekari viðspyrnu yfir vetrartímann og fram á vor 2021. Með því er einnig brugðist við þeim aðstæðum sem skapast hafa vegna samkomubanns og lokanna undanfarna vikur og mánuði.

175 þúsund einstaklingar hafa þegar sótt ferðagjöfina, af um 280 þúsund sem hafa fengið hana útgefna. Af þeim hafa um 125 þúsund þegar nýtt sér ferðagjöfina. Tæplega fimmtíu þúsund ferðagjafir hafa enn ekki verið nýttar, samkvæmt tilkynningunni.

Frumvarpið verður nú kynnt og lagt fyrir Alþingi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert