Verslanir Góða hirðisins ná ekki að selja huti jafn hratt og þeir berast. Þetta kemur fram í facebook-færslu í dag.
Sorpa hefur opnað fyrir nytjagáma að nýju, þó bara þrjá; í Ánanaustum, Sævarhöfða og Breiðhellu. Ekki verður hægt að koma með nytjahluti í aðrar stöðvar að svo stöddu.
Þá er fólk beðið um að bíða með að losa sig við hluti í lengstu lög. Ástæða þess er að Góði hirðirinn getur ekki selt nytjahluti jafnóðum vegna samkomutakmarkana í verslunum.
Kæru viðskiptavinir! Við höfum opnað nytjagámana að nýju í Ánanaustum, Sævarhöfða og Breiðhellu. Ekki er hægt að koma...
Posted by SORPA on Tuesday, 1 December 2020