Alls greindust 12 smit innanlands í gær og voru allir þeir sem greindust í sóttkví. Alls eru 212 í einangrun. Hefur þeim fjölgað um sjö á milli daga. Á sjúkrahúsi eru 38 vegna Covid-19 og af þeim eru tveir á gjörgæslu. Alls eru 679 í sóttkví og 904 eru í skimunarsóttkví.
Alls voru tekin tæplega 900 sýni innanlands í gær og 339 á landamærunum. Á landamærunum greindist eitt virkt smit við fyrri skimun og eitt við seinni skimun. Þrír bíða niðurstöðu mótefnamælingar.
Tvö börn yngri en eins árs eru í einangrun, fjögur börn á aldrinum 1-5 ára eru í einangrun og átta börn 6-12 ára. Átta börn á aldrinum 13-17 ára eru með Covid-19 í dag. Í aldurshópnum 18-29 ára eru 37 smit, á fertugsaldri eru smitin nú 39 talsins en í aldurshópnum 40-49 er 31 smit. Á sextugsaldri eru 48 með Covid og á sjötugsaldri eru 18 smit. 13 eru með Covid á aldrinum 70-79 ára, þrír á níræðisaldri og einn einstaklingur yfir nírætt eru með veiruna að því er fram kemur á covid.is.
Á höfuðborgarsvæðinu eru 179 í einangrun og 413 eru í sóttkví. Á Suðurnesjum eru 13 smitaðir en 137 í sóttkví. Á Suðurlandi eru sjö smit en 10 í sóttkví. Á Austurlandi er enginn með Covid-19-smit og enginn í sóttkví. Á Norðurlandi eystra eru fjögur smit og þrír í sóttkví. Á Norðvesturlandi er ekkert smit og þrír í sóttkví. Á Vestfjörðum er eitt smit og 20 í sóttkví og á Vesturlandi eru fimm smit og 88 í sóttkví. Óstaðsettir í hús eru þrír í einangrun og fimm í sóttkví.