Ríkisstjórn hefur samþykkt upptöku nýs viðvörunarkerfis fyrir kórónuveiruna sem byggir á litakóðunarkerfi Veðurstofu Íslands. Kerfinu er ætlað að auka fyrirsjáanleika til lengri tíma hvað aðgerðir stjórnvalda gegn veirunni varðar.
Þannig má lágmarka heildarskaðann sem samfélaginu er unninn vegna samkomutakmarkana, eins og segir á vef stjórnarráðsins.
Allt frá aðstæðum sem kallast Nýja normið og þeim sem kallast Alvarlegt ástand, markast viðvörunarkerfið af þeim aðgerðum sem í gildi eru hvern tíma.