Alls greindust 14 smit kórónuveirunnar innanlands í gær. Tveir voru utan sóttkvíar við greiningu. Alls eru 195 í einangrun. Hefur þeim fækkað um tæplega 20 á milli daga. Á sjúkrahúsi eru 38 vegna Covid-19 og af þeim eru tveir á gjörgæslu. Alls eru 544 í sóttkví og 886 eru í skimunarsóttkví.
Þetta kemur fram á covid.is.
Alls voru tekin 800 einkennasýni í gær og 143 í sóttkvíar- og handahófsskimunum. 301 sýni var tekið við landamæraskimun. Á landamærunum greindust tvö smit og er beðið eftir niðurstöðu úr mótefnamælingu hjá báðum.
Nýgengi innanlandssmita undanfarnar tvær vikur er nú 45,5 en var 45,8 í gær. Þá er nýgengi landamærasmita nú 10,4 en var 11,2 í gær.