Allir geta æft úti

Hlaupahópar geta tekið til starfa að nýju ef þess er …
Hlaupahópar geta tekið til starfa að nýju ef þess er gætt að ekki séu fleiri en tíu í hóp og að tveir metrar séu á milli hlaupara. mbl.is/Kristinn Magnússon

Öllum er heimilt að stunda æfingar utandyra sem krefjast ekki snertingar að því gættu að virt sé tveggja metra nálægðartakmörkun og að hámarki 10 manns saman samkvæmt reglum sem taka gildi á miðnætti. 

Heimildir til að stunda íþróttastarf verða rýmri með nýrri reglugerð um takmarkanir á samkomum sem tekur gildi á morgun, fimmtudag. Sérstaklega er kveðið á um íþróttastarf á vegum Íþrótta- og ólympíusambands Íslands (ÍSÍ) varðandi heimildir til æfinga meðal afreksfólks og í efstu deildum sambandsins.

Íþróttaæfingar einstaklinga sem fæddir eru árið 2004 eða fyrr verða heimilar, hvort heldur með eða án snertingar í íþróttum innan ÍSÍ í efstu deild kvenna og karla í hverju sérsambandi. Hámarksfjöldi í hverju rými er 25 manns.

Æfingar afreksmanna í einstaklingsbundnum íþróttum innan ÍSÍ eru heimilar og þar er einnig hámarksfjöldi í hverju rými 25 manns.

Sameiginleg áhöld skulu sótthreinsuð a.m.k. tvisvar á dag, loftræsting skal vera í lagi og loftað út reglulega yfir daginn.

Æfingar sem krefjast snertingar innan bardagaíþrótta eru óheimilar.

Undanþáguheimild: Í 8. gr. meðfylgjandi reglugerðar er kveðið á um heimild ráðherra til að veita undanþágu frá banni við íþróttastarfi fyrir einstaka viðburði, svo sem vegna alþjóðlegra keppnisleikja hér á landi eða æfinga í næstefstu deild sérsambands Íþrótta- og ólympíusambands Íslands ef deildin er skilgreind á sama afreksstigi og efsta deild, enda sé gætt fyllstu sóttvarna að öðru leyti.

Reglugerðin í heild

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert