Heilbrigðisráðuneytið hefur gert breytingu á reglugerð um takmörkun á samkomum vegna farsóttar. Breytingin felur í sér tilmæli um að börn fædd 2005 eða síðar þurfa ekki að bera andlitsgrímu. Áður gilti þetta um börn fædd 2011 og síðar.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Strætó.
Breytt reglugerð tekur gildi fimmtudaginn 10. desember og nær hún til allra vagna Strætó á höfuðborgarsvæðinu og á landsbyggðinni.
Tilkynningu Stjórnarráðsins má nálgast hér.