Ekki er ljóst hvenær dreifing bóluefna vegna Covid-19 hefst. Það er því ótímabært að tala um hvenær bólusetning hefst hér á landi. Vonir eru bundnar við að hún geti hafist á fyrri hluta næsta árs. Það er ekki hægt að panta í bólusetningu. Allir munu fá boð í bólusetningu þegar kemur að þeim.
Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins.
Þar er bent á, að búið sé að birta reglugerð um forgangsröðun við bólusetningu vegna COVID-19. Tilgangur reglugerðarinnar sé að ákveða forgangsröðunina á grundvelli málefnalegra sjónarmiða.
Þá kemur fram að sóttvarnalæknir beri ábyrgð á skipulagningu og samræmingu bólusetningar, þar á meðal röðun í forgangshópa. Tekið er fram að heilsugæslustöðvar sjái um framkvæmd bólusetninganna en geta ekki sett einstaklinga í forgangshóp.
„Vinsamlega hringið ekki í heilsugæslustöðvar vegna þessa. Enginn þarf að óttast að verða útundan þegar að bólusetningunni kemur.“